Djúphreinsun
Flýtileiðir
Djúphreinsun
Djúphreinsun er hreinsiaðferð sem flestir, ef ekki allir, teppaframleiðendur mæla með.
Við höfum mikla reynslu af djúphreinsun á áklæðum og leðri og notum til þess öflug hreinsiefni. Við gætum að öllum smáatriðum til að tryggja sem bestan árangur, á viðráðanlegu verði. Við djúphreinsum með hreinsiefnum sem fjarlægja óhreinindi og fríska uppá húsgögn.
Starfsfólk okkar hefur margra ára reynslu í:
Djúphreinsun fyrir Hótel
Djúphreinsun fyrir Sameignir
Djúphreinsun fyrir Fyrirtæki og Stofnanir
Djúphreinsun fyrir Heimili
Djúphreinsun á stólum
Það getur verið erfitt að halda stólum á borð við borðstofustóla hreinum ef um tauefni er að ræða sem óhreinindi eiga auðvelt með að setjast í. Óhreinindin sitja ekki bara í yfirborðsefninu heldur ná niður í svampa og önnur efni undir yfirborðinu og því er djúphreinsun mikilvæg.
Því leggum við mikið uppúr því að djúphreinsa erfiða bletti með aðferðum sem ná upp óhreinindum sem hafa sest undir yfirborðið.
Djúphreinsun á sófum
Hvort sem um ræðir slys eftir litla fingur, loppur, eða rauðvín yfir sjónvarpinu getur verið erfitt að ná almennilegri hreinsun sem kemur í veg fyrir bletti, myglu og jafnvel ólykt seinna meir. Óhreinindin sitja ekki bara í yfirborðsefninu heldur ná niður í svampa og önnur efni undir yfirborðinu og því er djúphreinsun mikilvæg.
Því leggum við mikið uppúr því að djúphreinsa erfiða bletti með aðferðum sem ná upp óhreinindum sem hafa sest undir yfirborðið. Með djúphreinsun fyrirbyggjum við frekari óhreininda vesen, líkt of myglu, í kjölfar óhreininda.
Djúphreinsun á dýnum
Rómantískur morgunmatur í rúmið?
Litlu krílin sváfu uppí?
En hlutirnir fóru ekki alveg eins og þú ætlaðir.
Djúphreinsun er lausnin. Hvort sem um ræðir dýnur á heimilinu sem þarf að taka í gegn eða hótelinu sem þurfa svolitla ást eftir 100+ gesti til að halda uppi jákvæðum umsögnum.
Við leggum mikið uppúr því að djúphreinsa erfiða bletti með aðferðum sem ná upp óhreinindum sem hafa sest undir yfirborðið. Með djúphreinsun fyrirbyggjum við frekari óhreininda vesen, líkt of myglu, sem geta fylgt í kjölfar óhreininda.
Djúphreinsun teppa
Skúfur býður einnig uppá djúphreinsun á teppum. Kynntu þér þjónustu okkar í Teppahreinsun.
CFX+Rotovac: Þetta er hin sanna djúphreinsun. Hreinsikraftur Rotavac vélanna er framúrskarandi.
Verð
Verð á Djúphreinsun fer eftir hvað skal djúphreinsa t.a.m. teppi, stóla eða önnur húsgögn, og umfangi verkefnis.
Hafðu samband við okkur og við bjóðum þér verðtilboð án skuldbindingar.
Hvað er djúphreinsun?
Djúphreinsun, eða heitvatnshreinsun öðru nafni, er aðferð sem flestir ef ekki allir teppaframleiðendur mæla með.
Djúphreinsun er blauthreinsiaðferð en sker sig frá öðrum blauthreinsiaðferðum þar sem hún krefst meiri vélarkrafts þ.e. sogkrafts til að ná sem mestu vatnsmagni úr efninu og minnka þar með þurrktíma. Einnig vinnum djúphreinsun með heitt vatn og sérstök efni. Það er einmitt hitastig vatnsins, hreinsiefnin, og þessi gríðarlegi sogkraftur djúphreinsivélarinnar sem sjá til þess að sápuleyfar eru ekki skildar eftir í teppinu.
Blauthreinsun er algengasta teppahreinsiaðferðin á Íslandi en mikilvægt er að greina á milli hefðbundinnar Blauthreinsunar og Djúphreinsunar/Heitavatnshreinsunar.
Forvitnastu meira um muninn á Heitavatnshreinsun og Blauthreinsun.
Þegar þú velur djúphreinsun hjá okkur ertu ekki bara að panta venjulega hreinsun – þú ert að lengja líftíma teppanna og húsgagnanna, bæta inniloftið og gera rýmið þitt notalegra. Djúphreinsun nær mun dýpra en hefðbundin yfirborðshreinsun og fjarlægir óhreinindi, ryksugur og bletti sem hafa sest djúpt í efnið með tímanum.
Við sérhæfum okkur í djúphreinsun á teppum, húsgögnum, sófum, stólum og dýnum, bæði á heimilum og hjá fyrirtækjum. Hvort sem þú ert með fjölskylduheimili með litlum fingrum og loppum, eða skrifstofurými þar sem mikil umferð er yfir daginn, þá aðlögum við djúphreinsun að þínum þörfum. Markmiðið er alltaf það sama: ferskari teppi og húsgögn, hreinna umhverfi og ánægðari notendur.
Fyrir heilnæmara umhverfi
Regluleg djúphreinsun teppa og húsgagna getur hjálpað til við að minnka ryk, óhreinindi og ofnæmisvalda sem safnast upp í trefjum með tímanum. Með öflugum vélum, heitu vatni og sérvöldum hreinsiefnum fjarlægjum við óhreinindi án þess að skilja eftir sápuleifar, sem getur skipt miklu máli fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir ryki eða lykt.
Ef þú ert íhuga að láta taka teppin, stólana, sófann eða dýnurnar í gegn er djúphreinsun öruggasta leiðin til að fá sem bestu útkomuna.
Hafðu samband við okkur og við finnum góða lausn – með persónulegri þjónustu og faglegri djúphreinsun sem skilar raunverulegum mun.

Steinteppahreinsun
Við sjáum um hreinsun á steinteppum fyrir einstaklinga, fyrirtæki, og sameignir

Mottuhreinsun
Við erum opin frá 16-18 alla virka daga fyrir mottuhreinsun

Stigahús
Við sjáum um hreinsun á stigahúsum í sameignum

Húsgagnahreinsun
Við sjáum um húsgagna hreinsun fyrir einstaklinga og fyrirtæki




