Steinteppi hafa marga góða kosti sem sameina kosti
hefðbundina teppa og harðra gólfefni s.s. flísa.
Þau eru í senn bæði mjúk að
ganga á en hafa styrkinn frá flísunum.
Eitt er þó sem hefur valdið mönnum heilabrotum
sem er hvernig á að hreinsa þau?
Mismunandi verkfæri
eftir aðstæðum
Gjörðu
svo vel að hafa samband og við getum komið
og skoðað aðstæður og gert tilboð
þér að kostnaðarlausu.
|
Staðreyndin
er nefnilega að steinteppi hafa eiginleika “teppa”
ekki síður en “harðra” gólfefna.
Með það til hliðsjónar þá
verður það deginum ljósara hvað það
er sem ber að varast svo hreinsunin takist vel og endist
lengi.

Skúfur
Teppahreinsun hefur sl ár verið að þróa
aðferð við að hreinsa þessi gólfefni
og hefur því gengið í gegnum allar
villurnar sem flestir eru að gera. Þ.e.a.s. að
hreinsa eins og um “hart” gólfefni væri
að ræða.
Daglegt viðhald
þarf að vera í samræmi við ofangreinda
staðreyndir en einnig er vert að huga að nokkrum
sérstökum eiginleikum steinteppa, sem hefur áhrif
á meðhöndlun þeirra.
Mörg
hreinsiefni sem eru notuð á hörð gólf
eru með þá eiginleika að skilja eftir
sig filmu á yfirborðinu og er jafnvel sóst
eftir þessum eiginleika. Í steinteppum er þetta
ókostur og ástæða til að forðast.
Athugið! gólfþvottavélar eru
ekki hentug verkfæri fyrir steinteppi.
Góð(rétt)
hreinsiefni á steinteppi skilja ekki eftir filmu á
yfirborðinu heldur kristallast (duftar) og svo er gert
ráð fyrir því eigendur ryksugi þessa
kristalla í burtu síðar. Þetta er
nákvæmlega lykillinn að því
að ná árangri við að hreinsa steinteppi.
Reglulegt
viðhald steinteppa
Reynslan
hefur kennt okkur að daglegt viðhald á steinteppum
ætti ekki að vera að skúra eins og um
hart gólf væri að ræða, heldur:
Ryksuga
reglulega með öflugri belgryksugu.
Stöku
sinnum moppa með rykadrægri þurr”moppu
og/eða
moppa með blautmoppu – með hreinu vatni eða
með örlitlu af teppasápu
Svo
að lokum – Djúphreinsa (1 til 3 sinnum
á ári, það,fer eftir umgangi og álagi)
eins og um væri að ræða teppi og með
efnum sem skilja EKKI eftir filmu ( s.s. teppasápu)
Þetta verk er
unnið með sérhönnuðu verkfæri.
Þessi verkfæri notum við einnig við að
hreinsa náttúrustein-gólf. (Sjá
mynd)
|