Skúfur mottuhreinsun



Forsiða
Teppahreinsun
Steinteppahreinsun
Mottuhreinsun
Húsgagnahreinsun
Blettahreinsun
Hreinsun stigahúsa
Val á teppum
Myndbönd
Hafðu samband





 

Blettahreinsun með efnum og áhöldum úr eldhúsinu :

 

B lautur blettur )

Fyrst er bletturinn skafin upp með bitlausum hníf eða skeið , svo er hann þerraður upp með hvítri tusku eða eldhúsrúllu . Munið að óþarfa nudd getur skaðað teppið - Þá er hafist handa með Hreinsiefninu . Til að byrja með er aðeins notað volgt vatn , svolitlu af því er dreift á blettinn og með handbursta eða handklæði er burstað yfir blettinn , langs og þvers og þerraður aftur . Að þessu loknu má setja kartöflumjöl eða salt yfir vætusvæðið til að draga upp leifarnar af vökvanum , munið að hylja blettinn vel. - Nú virkar efnið með sogkrafti á vökvann ( hárpípusogkraftur ). - Að lokum þegar efnið er orðið vel þurrt þá er það ryksugað upp . Ath ! þurrktíminn getur verið fram á næsta dag og virkar efnið betur ef það fær að þorna alveg . Sólarhringur er ekki óalgengur þurrktími í þessum tilfellum .

Blettahreinsun , ( þurrir blettir ):

Þurrir blettir eru erfiðastir viðureignar því þá er liturinn bundinn við þráðinn í teppinu . Hér er því fyrst nauðsynlegt að nota blettahreinsiefni og af réttri gerð . Eins og áður sagði þá verður aðeins notast við efni sem ættu að vera til í öllum eldhúsum Þetta eru einfaldar leiðbeiningar að því leyti að við ættlum aðeins að notast við tvær vökvablöndur en þær leysa flest efni upp . Þess ber að geta að einnig er hægt að nota þurrhreinsiefni í staðinn fyrir vatn eins og við tölum um hér . Þá eru hér að neðan nokkur önnur góð ráð við tjöru , kaffi , te , rauðvín og vax blettum .

 

Vinnulýsing : Ef bletturinn stafar af matarleifum eða mjólkurdrykkjum þá er ráðlegt að velja " blöndu 1." og bera hann í blettinn , með því að væta hvíta tusku upp úr honum og " dumpa ". Nudda varlega með handklæði eða bursta , skola með vatni og þerra með handklæði . Þetta er endurtekið þar til bletturinn er farinn að færast yfir í tuskuna . - Þessi aðferð er svolítið seinleg , en ráðlegt er að fylgja þessum vinnuaðferðum , sérstaklega ef viðkvæm ullarteppi er að ræða . Það er einnig hægt að dreifa blettavökvanum með hand- úðabrúsa og bursta með mjúkum bursta á eftir og síðan strjúka yfir þéttingsfast með hvítri tusku . Þetta er fljótlegri aðferð en gæta verður þess að nota ekki of mikið af blettavökvanum í einu . - Að þessu loknu þá er bletturinn skolaður með “ Blöndu 2.” . - Ef bletturinn stafar frá olíu eða tjöru þá er ráðlegra að væta hann upp með " Terpentínu ” eða Rúðu-úða ) og síðan í kjölfarið ,- þerra eins og áður er lýst og skolað með blöndu 2. - Ef bletturinn er Kaffi , te eða rauðvín þá er farið eins að en aðeins með sterkari edikblöndu 10%. - Vax - leggið vélritunapappir yfir blettin og hitapressið með straujárni á lágum hita , endurtekið eftir þörfum og nuddið að lokum með rúðuúða .

 

Blanda 1.: Volgt vatn með 2-3% grænsápu eða uppþvottalög og blandið örlitlu af (0.5%) salmíakspíritus út í.

 

Blanda 2. : Volgt vatn með 1:30 af 5% borðediki ( ath kryddfrítt )

Olíu og fitublettir : terpentína ( whiteSpirit ) eða rúðuúði ( Geysli eða samsvarandi )

 

Athugið að marga bletti er annað hvort er mjög erfitt að hreinsa eða jafvel ómögulegt að ná úr teppinu . Hins vegar er gullna reglan þessi : DAGLEG BLETTAHREINSUN OG VANDLEG RYKSUGUN, ÚTILOKAR FLEST VANDAMÁL VARÐANDI VIÐHALD TEPPA!!

Ef þessi ráð duga ekki hafið þá samband við fagmenn .

 

Prentið þetta skjal og hafið við hendina þegar hreinsun er reynd